Rafræn atkvæðagreiðsla um nýjan kjarasamning aðildarfélaga SGS við SA hefst í dag 13.mars kl.12:00 og stendur til kl.09:00, miðvikudaginn 20. mars. Hægt er að greiða atkvæði hér (sjá hnapp fyrir neðan).

Til að greiða atkvæði um samninginn þarf viðkomandi að hafa rafræn skilríki eða íslykil. Atkvæðisrétt eiga allir félagsmenn í aðildarfélögum SGS sem vinna eftir viðkomandi samningi. Geti einhver, sem telur sig eiga atkvæðisrétt, ekki kosið getur viðkomandi snúið sér til skrifstofu félagsins og fengið sig færðan á kjörskrá og greitt atkvæði, enda leggi viðkomandi fram launaseðil sem staðfesta afdregin félagsgjöld. Tekið er við kjörskrárkærum samkvæmt framansögðu til kl. 09:00 miðvikudaginn 20. mars en þá lýkur atkvæðagreiðslu um samninginn.

Félagsmenn eru eindregið hvattir til að nýta réttindi sín og greiða atkvæði. 

Allar helstu upplýsingar um samninginn má finna hér