Atkvæðagreiðslu um kjarasamning milli Sjómannasambands Íslands og Samtaka fyrirtækja í sjávarútvegi sem undirritaður var þann 6. febrúar síðastliðinn lauk kl. 15:00 í dag.

Á kjörskrá voru 1104 og greiddu 592 atkvæði um samninginn eða 53,62%

Niðurstaða atkvæðagreiðslunnar er þessi:

Af þeim sem tóku afstöðu sögðu 62,84% já og 37,16% sögðu nei, auðir og ógildir seðlar voru 8.

Samningurinn var því samþykktur.