september 2019
júlí 2019
Opnunartími 8.júlí – 12.ágúst
Vegna sumarleyfa frá 8.júlí - 12.ágúst verður opnunartími á skrifstofum félagsins með breyttu sniði. Opnunartíma má sjá hér.
júní 2019
Ræða formanns á sjómannadag
Formaður félagsins Vignir Smári Maríasson var fenginn til þess að flytja ræðu á sjómannadaginn í Ólafsvík. Áhugasamir geta lesið ræðuna hér fyrir neðan. "Ágætu félagar, sjómenn, fyrrverandi sjómenn og verðandi sjómenn, en sérstaklega sjómannskonur innilega til hamingju með daginn. Í dag höldum við hátíðlegann sjómannadaginn, þann fyrsta dag sem sjómenn fengu sem lögbundinn frídag, þann [...]
maí 2019
Lokað 13.maí
Lokað verður á skrifstofum félagsins mánudaginn 13.maí. The unions offices will be closed on Monday, may 13th.
Sumarúthlutun lokið
Úthlutun sumarhúsa fyrir sumarið 2019 er lokið. Þeim sem sóttu um fyrir sumarið hefur verið sent bréf/tölvupóstur. Nokkrar vikur eru lausar í sumar og hægt er að sækja um með því að hafa samband við skrifstofur félagsins.
1.maí hátíðahöld
Verkalýðsfélag Snæfellinga, S.D.S og Sameyki stóðu saman að samkomum dagsins á Snæfellsnesi. Vel var mætt á baráttufundi á svæðinu sem voru haldnir á Fosshótel Stykkishólmi, samkomuhúsinu Grundarfirði og félagsheimilinu Klifi í Ólafsvík. Vignir Smári Maríasson formaður Verkalýðsfélags Snæfellinga flutti barátturæðu dagsins . Ræðu Vignis má lesa hér. Flutt voru atriði frá tónlistarskólunum á svæðinu, [...]
apríl 2019
Orlofsuppbót og orlofsuppbótarauki 2019
Orlofsuppbót er föst fjárhæð sem atvinnurekendum er skylt að greiða starfsfólki sínu í maí/júní á ári hverju. Uppbótin miðast við starfshlutfall og starfstíma á orlofsárinu, inniheldur orlof og tekur ekki breytingum skv. öðrum ákvæðum. Almennur vinnumarkaður: Þeir sem starfa á almennum vinnumarkaði og hafa verið í fullu starfi á orlofsárinu 1. maí 2018 – 30. apríl 2019 [...]
Hátíðahöld á Snæfellsnesi 1. maí
Verklýðsdagurinn verður haldinn hátíðlegur að venju um allt Snæfellsnes í samstarfi Verkalýðsfélags Snæfellinga, Starfsmannafélags Dala- og Snæfellsnessýslu og Sameyki stéttarfélags í almannaþjónustu . Sjá meðfylgjandi dagskrá.
Niðurstaða kosninga um kjarasamninga LÍV og SA
Niðurstöður rafrænna atkvæðagreiðslna aðildarfélaga Landssambands ísl. verzlunarmanna um nýgerða kjarasamninga liggja nú fyrir. Kjarasamningarnir voru samþykktur með miklum meirihluta atkvæða hjá öllum verslunarmannafélögum og deildum verslunarmanna innan LÍV. Kjörsókn um samning SA var 20,75% og um samning FA 26,67%. Á kjörskrá um samning milli aðildarfélaga LÍV og SA voru 37.375 félagsmenn og sögðu 88,40% já [...]
Nýr kjarasamningur samþykktur hjá öllum félögum SGS
Niðurstöður atkvæðagreiðslu um nýjan kjarasamning Starfsgreinasambands Íslands og Samtaka atvinnulífsins á hinum almenna vinnumarkaði liggja nú fyrir og var samningurinn samþykktur með yfirgnæfandi meirihluta. Starfsgreinasambandið hélt utan um sameiginlega rafræna atkvæðagreiðslu meðal 18 félaga um nýjan samning, en AFL Starfsgreinafélag sá sjálft um sína atkvæðagreiðslu. Atkvæðagreiðslan stóð yfir á tímabilinu 12. til 23. apríl. Í [...]





