Verkalýðsfélag Snæfellinga, S.D.S og Sameyki stóðu saman að samkomum dagsins á Snæfellsnesi.
Vel var mætt á baráttufundi á svæðinu sem voru haldnir á Fosshótel Stykkishólmi, samkomuhúsinu Grundarfirði og félagsheimilinu Klifi í Ólafsvík.
Vignir Smári Maríasson formaður Verkalýðsfélags Snæfellinga flutti barátturæðu dagsins . Ræðu Vignis má lesa hér.
Flutt voru atriði frá tónlistarskólunum á svæðinu, leik-og söngkonan Þórunn Lárusdóttir og tónlistarmaðurinn Karl Olgeirsson tóku nokkur vel valin lög og að skemmtiatriðum loknum var boðið upp á kaffiveitingar.