Umsóknum í orlofssjóð Verkalýðsfélag Snæfellinga skal skila inn rafrænt í gegnum vefsíðu félagsins eða á þar til gerðum umsóknareyðublöðum sem hægt er að sækja á vefsíðu félagsins eða á skrifstofum.

Skila þarf umsóknum eigi síðar en 19.hvers mánaðar til þess að umsókn fái afgreiðslu í þeim mánuði. Greitt er út síðasta virka dag hvers mánaðar.

Allar umsóknir sem falla beint undir reglugerð orlofssjóðs eru afgreiddar af starfsmanni félagsins, ef upp koma vafamál er umsóknin lögð fyrir stjórn orlofssjóðs.
Mikilvægt er að umsóknir séu rétt útfylltar og nauðsynleg fylgiskjöl fylgi með. Starfsmaður félagsins hefur ekki heimild til þess að afgreiða umsóknir séu þær ekki rétt útfylltar og nauðsynleg gögn liggi fyrir.