Öryggi og persónuvernd á vefnum

Þegar þú notar vef Verkalýðsfélags Snæfellinga verða til upplýsingar um heimsóknina. Verkalýðsfélagið miðlar þeim ekki til annarra nema samkvæmt lagaskyldu til eftirlitsaðila.

Notkun á vafrakökum

Svo kallaðar vafrakökur* eru notaðar á vefnum til að telja heimsóknir á.

Það er stefna verkalýðsfélagsins að nota vafrakökur sparlega og með ábyrgum hætti. Notendur vefsins geta að sjálfsögðu stillt vafra sína þannig að þeir láti vita af kökum eða hafni þeim með öllu.

Verkalýðsfélagið notar Google Analytics til vefmælinga. Við hverja komu inn á vefinn eru nokkur atriði skráð, svo sem tími og dagsetning, leitarorð, frá hvaða vef er komið og gerð vafra og stýrikerfis. Þessar upplýsingar má nota við endurbætur á vefnum og þróun hans, t.d. um það efni sem notendur sækjast mest eftir og fleira. Engum frekari upplýsingum er safnað um hverja komu og ekki er gerð tilraun til að tengja slíkar upplýsingar við aðrar persónugreinanlegar upplýsingar.

* „cookies“ – sérstök skrá sem komið er fyrir á tölvu notanda sem heimsækir viðkomandi vef og geymir upplýsingar um heimsóknina.

SSL skilríki

Vefurinn notast við SSL-skilríki sem þýðir að öll samskipti eru yfir dulritað burðarlag. Það gerir gagnaflutning í gegnum hann öruggari.

SSL skilríki varna því að óprúttnir aðilar komist yfir gögn sem send eru í gegnum vefinn, eins og t.d. lykilorð. Með skilríkjunum eru upplýsingar sem sendar eru milli notenda vefmiðlara dulkóðaðar og gögnin sem flutt eru á milli skila sér á réttan stað á öruggan máta.