Iðgjöld
Iðgjöld sem launagreiðanda ber að standa skil á eru sem hér segir:
(Reiknast alltaf af heildarlaunum)
Almennur vinnumarkarður |
Sveitarfélög | Ríkið | Sjómenn | Smábáta- sjómenn |
|
Félagsgjald | 1% | 1% | 1% | 1% | 1% |
Sjúkrasjóður | 1% | 1,25% | 0,75% | 1% | 1% |
Fræðslugjald | 0,30% | 0,82% | 0,67% | ||
Orlofssjóður | 0,25% | 1% | 0,50% | 0,25% | 0,25% |
Fræðslugjald iðnaðarmanna | 0,50% | ||||
Útgerðargjald | 0,24% | ||||
Félagsmannasjóður | 1,5% |
- Fræðslusjóðsgjald greiðist ekki af sjómönnum, hvorki þeim sem starfa samkvæmt samningi félagsins við SFS né smábátasjómönnum.
- Fræðslusjóðsgjald af fagllærðum iðnarmönnum er 0,50%.
- Útgerðargjald kemur í stað greiðslumiðlunargjalds og er ekki greitt af smábátasjómönnum..
- Að auki skal greiða 0,10 % í endurhæfingarsjóð, sem skilast til viðkomandi lífeyrissjóðs.
- Gjaldi í félagsmannasjóð skal skilað á sér skilagrein og greitt inn á rkn.nr: 0133-15-002539.
Rafræn skil
Þeir launagreiðendur sem senda skilagreinar rafrænt þurfa í sumum tilvikum að breyta upplýsingum um okkur í sínu launakerfi en önnur eins og t.d. DK uppfæra rafræna innheimtuaðila sjálfkrafa.
Þessar upplýsingar er að finna á www.skilagrein.is undir innheimtuaðilar.
Við tökum einnig á móti skilagreinum á SAL-formi (textaskrár) í tölvupósti á netfangið: olof@verks.is
Ef einhver vandræði eru með rafræn skil þá vinsamlegast hafið samband við skrifstofuna í síma 588-9191 eða í tölvupósti á netfangið olof@verks.is.