Sumartímabilið í ár er frá 4. júní til 28. ágúst. Opnað verður fyrir umsóknir á félagavefnum þann 9. mars kl. 12:00.
Mikilvægar dagsetningar:
• 9. mars – 7. apríl: Opið fyrir umsóknir um sumarhús (umsóknarfrestur rennur út á miðnætti).
• 8. apríl: Úthlutun fer fram. Allir umsækjendur fá tölvupóst að henni lokinni.
• 15. apríl: Síðasti dagur til að greiða fyrir úthlutaða viku.
• 16. apríl: Opnað fyrir beinar bókanir á þeim vikum sem ekki var úthlutað eða voru ekki greiddar.
Fyrirkomulag leigu:
• Svignaskarð og Brekkuskógur: Vika leigð frá föstudegi til föstudags.
• Flúðir: Vika leigð frá fimmtudegi til fimmtudags.
• Höfuðborgarsvæðið: Þann 9. mars opnar einnig fyrir bókanir í íbúðir á höfuðborgarsvæðinu fyrir tímabilið maí–ágúst (fyrstur kemur, fyrstur fær).