Samkvæmt lögum Verkalýðsfélags Snæfellinga ber að viðhafa allsherjaratkvæðagreiðslu um kjör stjórnar. Þau embætti sem kjósa á um í ár samkvæmt lögum félagsins eru sem hér segir :

Til tveggja ára: varaformann og ritara

Trúnaðarráð Verkalýðsfélags Snæfellinga hefur samþykkt eftirfarandi lista vegna stjórnarkjörs 2025. Komi ekki fram fleiri listar telst eftirfarandi listi sjálfkjörinn

Varaformaður: Harpa Björk Eiríksdóttir
Ritari: Dana Sif Óðinsdóttir

Skila skal framboðslistum til stjórnarkjörs í Verkalýðsfélagi Snæfellinga árið 2025, ásamt meðmælum að minnsta kosti 30 fullgildra félagsmanna, á skrifstofu Verkalýðsfélags Snæfellinga Ólafsbraut 19, 355 Ólafsvík, merkt kjörtstjórn, fyrir kl:15:00 þann 7.apríl 2025.