Allir félagsmenn sem störfuðu hjá sveitarfélagi á árinu 2024 eiga að fá greitt úr Félagsmannasjóði í byrjun febrúar nk. Iðgjald í sjóðinn er 1,5% af heildarlaunum.

Þar sem að Verkalýðsfélag Snæfellinga greiðir úr sjóðnum er mikilvægt að félagið hafi aðgang að upplýsingum um reikningsnúmer og netfang allra.

Það er því mikilvægt að allir þeir sem að störfuðu hjá sveitarfélögum og greiddu til Verkalýðsfélags Snæfellinga af launum sínum skrái þær upplýsingar inn á félagavefinn okkar.

Hægt er að komast á hann í vefinn með því að smella hér 

Þegar búið er að skrá sig inn á félagavefinn er ýtt á hnapp efst í hægra horninu ,sá hnappur sýnir upphafsstaf nafns félagans sem er innskráður , þá kemur valmynd þar sem þið veljið persónu og bankaupplýsingar og fyllið það út skilmerkilega.