Stjórn Verkalýðsfélags Snæfellinga fordæmir aðför SVEIT (Samtök fyrirtækja á vetingamarkaði) og meints „stéttarfélags“ sem stofnað var nýverið og ber heitið Virðing. Virðing ber öll merki þess að vera gervi „stéttarfélag“, stofnað af hálfu atvinnurekenda í veitingageiranum, stendur utan heildarsamtaka launafólks og hefur gert gervikjarasamning sem er ekki í nokkru samræmi við þá lögmætu samninga sem eru í gildi í veitingageiranum.
Þau kjör sem Virðing býður félagsfólki sínu eru ekki í samræmi við þá samninga sem eru í gildi á milli SGS og SA. Þvert á móti felur kjarasamningur Virðingar við SVEIT (Samtök fyrirtækja á veitingamarkaði) í sér verulegar skerðingar á launum og réttindum starfsfólks og má sem dæmi nefna:
• Dagvinna er greidd á virkum dögum til kl. 20:00 (til kl. 17:00 hjá Verkalýðsfélagi Snæfellinga)
• Vaktaálag á virkum kvöldum eftir kl. 20 er 31% (33% álag eftir kl. 17:00 hjá Verkalýðsfélagi Snæfellinga)
• Dagvinna á laugardögum til kl. 16:00 (45% álag allan daginn hjá Verkalýðsfélagi Snæfellinga)
• 31% álag á sunnudögum (45% álag hjá Verkalýðsfélagi Snæfellinga)
• Ekkert stórhátíðarkaup
• Kjör ungmenna á aldrinum 18-21 árs eru skert
• Heimilt að gera breytingar á starfshlutfalli með viku fyrirvara (uppsagnarfrestur gildir hjá Verkalýðsfélagi Snæfellinga)
• Réttur barnshafandi kvenna er skertur.
• Lakari veikindaréttur starfsfólks og vegna barna
• Lakari orlofsréttur
• Lakari uppsagnarfrestur
• Ekkert um sérstaka sjóði og greiðslur í þá
• Ýmis félagsleg réttindi eru skert sem og réttindi og möguleikar trúnaðarmanna á að gegna starfi sínu.
Um þessi störf er í gildi kjarasamningur milli Starfsgreinasambands Íslands, sem Verkalýðsfélag Snæfellinga er aðili að, og Samtaka atvinnulífsins sem kveður á um lágmarkskjör fyrir alla í viðkomandi starfsgrein. Samkvæmt lögum er óheimilt að semja um lakari kjör en kveðið er á um í þeim lágmargs kjarasamningi.
Stjórn Verkalýðsfélags Snæfellinga fordæmir þessa ófyrirleitnu aðför atvinnurekenda að verkafólki og þessa tilraun þeirra til að brjóta niður samstöðu meðal starfsfólks í greininni.
Stjórn Verkalýðsfélags Snæfellinga hvetur félagsfólk til að standa þétt saman um sín kjarasamningsbundnu réttindi og hafa samband við félagið til að spyrja um rétt sinn. Verkalýðsfélag Snæfellinga munu nú sem endranær standa þétt við hlið sinna félagsmanna og verja þau réttindi sem hafa verið byggð upp á síðustu hundrað árum með þrotlausri baráttu og samstöðu.
Stjórn Verkalýðsfélags Snæfellinga krefst þess að SVEIT láti af þessari alvarlegu aðför að kjörum og réttindum verkafólks á veitingamarkaði og virði þau lágmarksréttindi sem um hefur verið samið á íslenskum vinnumarkaði.