Fréttatilkynning í tilefni af fréttaskýringaþætti Kveiks  þar sem fjallað var um aðbúnað verkafólks, misneytingu og vinnumansal.

Undirrituð félög telja ástæðu til að árétta að mál af þeim toga sem fjallað var um í þættinum varðandi launaþjófnað og slæman aðbúnað verkafólks koma reglulega á borð félaganna. Mikið er um alvarleg brot gagnvart verkafólki og er erlent verkafólk í sérstaklega viðkvæmri stöðu. Algengt er að  laun og kjör séu undir lágmarkskjörum og of oft gengur erfiðlega að fá laun greidd. Brot gegn húsaleigulögum eru algeng, oft eru vistarverur óboðlegar, gjald fyrir húsnæði óeðlilega hátt og framkoma gegn starfsfólki slæm.

Félögin vilja árétta að mikið skortir á eftirlit af hálfu opinberra aðila hérlendis. Afleiðingar af brotum gegn réttindum launafólks af hálfu hins opinbera eru af skornum skammti. Þá er rétt að árétta sérstaklega að líkt og fram kom í þættinum gera opinberir aðilar samninga við fyrirtæki án þess að hafa nokkuð eftirliti með kjörum eða aðbúnaði starfsfólks þess aðila sem samið er við. Félögin skora á stjórnvöld að herða eftirlit og setja vinnu og fjármagn í þennan málaflokk þegar í stað enda núverandi staða landinu til skammar.

Virðingarfyllst,

Finnbogi Sveinbjörnsson                                                            

Bergvin Eyþórsson                                                                         Vignir Smári Maríasson

Verkalýðsfélag Vestfirðinga                                                     Verkalýðsfélag Snæfellinga

 

Þórarinn Guðni Sverrisson                                                          Halldóra Sigríður Sveinsdóttir

Aldan, stéttarfélag                                                                       Báran, stéttarfélag

 

Hrund Karlsdóttir                                                                            Magnús Sigfús Magnússon

Verkalýðs- og sjómannafélag Bolungavíkur                       Verkalýðs og sjómannafélag Sandgerðis

 

Guðrún Elín Pálsdóttir

Verkalýðsfélag Suðurlands

 

Þáttinn má sjá hér