Félagið hefur tekið í notkun nýtt sumarhús sem staðsett er í Arnarborgum í Stykkishólmi. Húsið er 110 m² og í því eru 3 svefnherbergi með gistirými fyrir 8, stofa, eldhús og baðherbergi með sturtu.

Húsið var í útleigu í sumar til félags á suðurlandi og fengu okkar félagsmenn afnot af sumarhúsi á Flúðum í staðinn. Í vetur gildir reglan fyrstu kemur fyrstur fær og er opið fyrir bókanir í síma 588-9191 eða á verks@verks.is

Nánari upplýsingar um húsið og myndir má sjá hér