Atkvæðagreiðslu er lokið hjá 18 aðildarfélögum Starfsgreinasambands Íslands, þar með talið Verkalýðsfélag Snæfellinga, vegna nýs kjarasamnings SGS og fjármálaráðherra f.h. ríkissjóðs sem undirritaður var 25. júní síðastliðinn. Rafræn atkvæðagreiðsla meðal félagsmanna stóð yfir dagana 1.-8. júlí. Á kjörskrá voru 1.309 manns og var kjörsókn 22,84%. Já sögðu 87,96%, nei sögðu 7,69% og 4,35% tóku ekki afstöðu.

Samningurinn var því samþykktur með yfirgnæfandi meirihluta hjá þeim 18 aðildarfélögum sem eiga aðild að honum.

Samningurinn

Upplýsingasíða um samninginn