Verkalýðsfélag Snæfellinga, Kjölur og Sameyki stóðu saman að samkomum dagsins á Snæfellsnesi.
Vel var mætt á baráttufundi á svæðinu sem voru haldnir á Fosshótel Stykkishólmi, samkomuhúsinu Grundarfirði og félagsheimilinu Klifi í Ólafsvík.
Björg Bjarnadóttir framkvæmdarstjóri SGS flutti barátturæðu dagsins . Ræðu Bjargar má lesa hér.
Flutt voru atriði frá tónlistarskólunum á svæðinu, Stefán Hilmarsson og Eyjólfur Kristjánsson tóku nokkur vel valin lög og að skemmtiatriðum loknum var boðið upp á kaffiveitingar.