Kynningarfundur um samninginn verður haldinn í næstu viku, nánar auglýst síðar.

Kosning um kjarasamninginn verður opnuð kl. 14:00 í dag (17. febrúar 2023) og stendur til kl. 15:00 þann 10. mars 2023. Atkvæðagreiðslan er rafræn og hægt er að kjósa með því að velja hnappinn hér fyrir ofan “greiða atkvæði”. ATH að aðeins er hægt að kjósa einu sinni.

Allar helstu upplýsingar um samninginn má finna hér .

Sjómenn eru hvattir til að kynna sér innihald samningsins áður en þeir greiða atkvæði því ekki er hægt að breyta valinu síðar.

Ef einhver sem telur sig eiga atkvæðisrétt, finnst ekki á kjörskrá getur viðkomandi snúið sér til skrifstofu félagsins.