Nýr kjarasamningur aðildarfélaga SGS og Samtaka atvinnulífsins var undirritaður þann 3. desember sl. (sjá samning hér)Atkvæðagreiðsla um hann fer fram frá 9.desember kl.12:00 og stendur til kl.12:00, 19. desember . Atkvæðagreiðslan er rafræn og hægt er að kjósa með því að velja hnappinn hér fyrir ofan “greiða atkvæði”.

Atkvæðisrétt eiga allir félagsmenn í aðildarfélögum SGS sem vinna eftir þessum samningi og greiddu félagsgjöld til einhvers aðildarfélaga SGS í  september/október 2022.

Ef einhver sem telur sig eiga atkvæðisrétt,  finnst ekki á kjörskrá getur viðkomandi snúið sér til skrifstofu síns stéttarfélags, og fengið sig færðan á kjörskrá og greitt atkvæði, enda leggi viðkomandi fram launaseðil sem sanni afdregin félagsgjöld í september/október 2022.
Tekið er við kjörskrárkærum samkvæmt framansögðu til kl. 12.00 mánudaginn 19. desember en þá lýkur atkvæðagreiðslu um samninginn.
Félagsmenn eru eindregið hvattir til að nýta réttindi sín og greiða atkvæði. Ítarlegar upplýsingar eru á heimasíðu SGS , félagsmönnum er ráðlagt að kynna sér þær vel.

Allar helstu upplýsingar um samninginn má finna hér 


A new collective agreement was signed between SGS and SA Confederation of Icelandic Enterprise on December 3rd. Voting will take place from December 9 at 12:00 p.m. and will last until December 19 at 12:00 p.m. The voting is electronic and you can vote by clicking on the “vote here” button on top of this post.

The Agreement in english

Main elements in new collective bargaining agreement between SGS and SA

UKŁAD ZBIOROWY PRACY

Główne zagadnienia dotyczące Układu Zbiorowego SGS i SA