Trúnaðarráð Verkalýðsfélags Snæfellinga samþykkti eftirfarandi ályktun á fundi sínum 4. maí 2022.
Trúnaðarráð Verkalýðsfélags Snæfellinga fordæmir þá ákvörðun stjórnar Eflingar að ráðast í hópuppsögn á öllum starfsmönnum sínum. Slíkar hópuppsagnir hafa eingöngu tíðkast þegar verið er að hætta alfarið starfsemi fyrirtækja eða leggja þau niður.
Trúnaðarráð Verkalýðsfélags Snæfellinga tekur undir fordæmingu forseta ASÍ á þeirri ákvörðun stjórnar Eflingar að ráðast í hópuppsögn á starfsmönnum sínum og harmar þær árásir sem forsetinn hefur orðið fyrir vegna hennar framgöngu í þessu máli