Fræðslusjóðirnir Landsmennt, Sjómennt, Ríkismennt og Sveitamennt, hafa ákveðið að hækka hámark einstaklingsstyrkja frá og með 1. janúar 2020.

Hámarksgreiðsla á ári fer úr kr. 100.000,- fyrir almennt nám í kr. 130.000,-

Þriggja ára uppsafnaður styrkur hækkar úr kr. 300.000,- í kr. 390.000,- fyrir eitt samfellt nám.

Breytingarnar  taka gildi 1. janúar 2020 og eiga við um nám sem hefst frá og með þeim tíma.