Samkvæmt kjarasamningum ber atvinnurekendum að greiða starfsfólki sínu desemberuppbót í byrjun desember ár hvert. Uppbótin er háð ákveðnum skilyrðum sem varða t.a.m. starfstíma og starfshlutfall á yfirstandandi ári. Desemberuppbót skal greiða í einu lagi og ofan á hana reiknast ekki orlof. Uppbótin er föst krónutala og tekur ekki hækkunum skv. öðrum ákvæðum kjarasamninga.
Upphæðir desemberuppbótar fyrir árið 2018:
- Full desemberuppbót árið 2018 er kr. 89.000 hjá þeim sem vinna á almennum vinnumarkaði.
- Full desemberuppbót árið 2018 er kr. 89.000 hjá þeim sem vinna hjá ríki.
- Full desemberuppbót árið 2018 hjá þeim sem vinna hjá sveitarfélögum er kr. 113.000.
Nánari upplýsingar um rétt til desemberuppbótar skv. kjarasamningum sem heyra undir SGS má finna hér.