Vignir Smári hefur gegnt starfi formanns félagsins frá því í apríl árið 2019 og sinnt því starfi af ábyrgð og fagmennsku. Á þessum árum hefur hann verið drífandi kraftur í starfi félagsins
Árið 2022 varð Vignir fyrir slysi sem hafði þær alvarlegu afleiðingar að hann missti starfsgetu. Þrátt fyrir þessa áskorun sýndi hann einstakan styrk og seiglu með því að snúa aftur til starfa. Hann lagði sig fram af krafti og sinnti embætti sínu af sömu fagmennsku og áður.
Þegar fram liðu stundir varð honum þó ljóst að starfsþrek hans var ekki lengur nægjanlegt til að sinna starfinu með þeim hætti sem hann sjálfur gerir kröfu til.
Hefur hann því, að vel ígrunduðu máli, tekið þá ákvörðun að láta af störfum og stíga til hliðar. Félagið þakkar Vigni Smára fyrir hans störf og framlag á liðnum árum, óskum við honum alls hins besta í framtíðinni.
Um leið og við kveðjum Vigni Smára bjóðum við Heiðrúnu velkomna til starfa sem nýjan formann og hlökkum til samstarfsins.
