Verkalýðsfélag Snæfellinga, Kjölur og Sameyki stóðu saman að samkomum dagsins á Snæfellsnesi.
Vel var mætt á baráttufundi á svæðinu sem voru haldnir á Fosshóteli í Stykkishólmi, samkomuhúsinu í Grundarfirði og félagsheimilinu Klifi í Ólafsvík.
Kristín Heba Gísladóttir, framkvæmdastjóri Vörðu – rannsóknarstofu vinnumarkaðarins, flutti barátturæðu dagsins . Ræðu Kristínar Hebu má lesa hér.
Flutt voru atriði frá tónlistarskólunum á svæðinu, Jón Jónsson flutti nokkur vel valin lög og að skemmtiatriðum loknum var boðið upp á kaffiveitingar.









