Sendi verkafólki á Snæfellsnesi og fjölskyldum þeirra bestu óskir um gleðilega hátíð á baraáttudegi verkalýðsins.

Kjarasamningar sem gerðir voru árið 2024 voru undirritaðir af verkalýðshreyfingunni í þeirri trú að hóflegir samningar myndu verða til þess að vextir og verðbólga myndu lækka, allir ráðamenn og seðlabankastjóri voru ánægðir með samningana enda búnir að margsegja mánuðina á undan að launahækkanir verkafólks væri það sem drifi verðbólguna áfram. Nú er staðan sú að í haust muni verðbólgan vera yfir 4,7%, markmiðinu sem við settum sem rautt strik í samningunum.

Nú er aftur farið að halda því fram að launahækkanir drífi verðbólguna áfram, en launahækkanir hverra? Þann 23. apríl var gefið út að hækkanir sem kjörnir fulltrúar og æðstu ráðamenn fá í júní verði ekki nema 3,5% í stað 9,5% eins og stóð til, þessi 3,5% eru samt næstum hálf mánaðarlaun verkafólks á almennum vinnumarkaði. Þann 27.maí sagði borgarstjóri, eftir að hafa verið gagnrýnd fyrir afkomu borgarinnar, að hún hefði hækkað laun kennara um 7% en ekki um 11,6% eins og launaskrið opinnberra starfsmanna hefði verið. 11,6% ofan á lægsta taxta kjarasamnings SGS eru 55.260 kr. Það verður hávaði þegar við biðjum um það!
Bankar á Íslandi borguðu út arð sem nemur 100 milljörðum vegna ársins 2024. Til þess að eiga fyrir þessum arðgreiðslum hefur íslenska bankakerfið þurft að ná 25.000 krónum af hverjum einasta lögráða Íslending í hverjum einasta mánuði ársins 2024, hvílíkt rán! Og þeir eru ekki búnir að lækka arðsemiskröfu sína fyrir þetta ár.

Þann 28.maí var send út greining ASÍ og BSRB á stöðu almenna íbúðakerfisins. Þar kom fram að töluvert vantar upp á að sveitarfélögin standi við sína hlið á kjarasamningum sem snýr að uppbyggingu á almenna íbúðakerfinu og hinu félagslega. Á sama tíma og þessi greining var send út var verið að skrifa undir samkomulag milli ríkisins og Reykjavíkurborgar um uppbyggingu á lóðum og í byggingum í eigu ríkisins, það er gott og blessað fyrir þá sem þar búa. Hvar eru önnur sveitarfélög á landinu stödd á þessari vegferð?

Á síðasta ári voru ríflega helmingur félagsmanna Verkalýðsfélags Snæfellinga með erlent ríkisfang, flestir eru farandverkamenn sem koma hér í stuttan tíma að vinna sér inn pening til að senda heim eða taka með sér þegar þeir fara. Hagvöxtur ferðaþjónustunnar er drifinn áfram af þessu fólki. Einhverstaðar þarf allt þetta fólk að búa, margt býr í húsnæði á vegum atvinnurekanda en það eru ekki allir atvinnurekendur sem eiga húsnæði fyrir farandverkafólkið sitt, þá þarf að leita til fyrirtækja sem eiga húsnæði og leigja það undir starfsfólkið. Samkvæmt því sem ég heyri frá félagsmönnum þá er leiga í slíku húsnæði að rjúka upp, í fyrra fór leiga á einu herbergi með aðgangi að sameiginlegu baði og eldhúsi upp í 90.000 kr. á mánuði, í ár hefur hún hækkað í 120.000 kr. á mánuði, það er 33% hækkun um síðustu áramót !!!! og svo kenna þessi sömu fyrirtæki verkafólkinu sem fékk 23.750 kr. hækkun um áramótin um að verðbólgan sé á fullri ferð, sú hækkun dugar ekki einu sinni til að greiða hækkunina á húsaleigunni, til þess hefði þurft 45.000 kr. hækkun á launin, þá á eftir að taka tillit til allra annara hækkana.
Hverjum er þá verðbólgan að kenna?

Bara svo það sé á hreinu, þá er þróun verðbólgu í höndum þeirra sem verðleggja vöru og þjónustu til neytenda. Vilji fyrirtæki sjá lækkun vaxta og að kjarasamningar haldi í haust, þá er valdið þeirra.
Kæru félagar, það eru áhugaverðir tímar í gangi núna svo ekki sé meira sagt. Stríðsátök víða um heim, líka í Evrópu, þjóðernishreinsanir og þjóðamorð í gangi, réttindabarátta allra hópa sem hafa unnið að því að vera viðurkennd í samfélögum verður fyrir árásum, bæði beint með líkamlegu ofbeldi en ekki síst því ofbeldi sem þrífst í orðræðu ákveðinna opinberra persóna.

Stöndum saman í baráttunni fyrir bættum kjörum, styrkur okkar er velferð allra!

Vignir Smári Maríasson
Formaður Verkalýðsfélags Snæfellinga